Æji Bubbi

Hvað ertu að æsa þig? Mér fannst þetta hundleiðinleg plata og er ábyggilega ekki ein um það. Þetta er svona dúllíkrúttí "sjáðu hvað ég er sæt" tónlist sem er ekki list fyrir mér. Eitthvað sem 10 ára frænka mín gæti gert og jafnvel betur. En hvað veit ég? Ég hef ekki gefið út plötu eða verið með í Idol. Samt finnst mér endilega eins og það sé hlustandinn sem skiptir máli en ekki aðrir tónlistarmenn. Það erum jú við sem kaupum plötuna og hlustum á lögin ekki satt?

En ég ætlaði mér samt ekki að skíta yfir hana Hafdísi. Er bara fyrir löngu kominmeð upp í kok af þessum sköllótta big mouth.!


mbl.is Bubbi hraunar yfir Sindra Eldon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Hef ekki heyrt þessa plötu.

Hef hinsvegar séð Bubba hrauna yfir marga undanfarið. ;)

Spurning hvort að hann hafi einkarétt til þess, eins og einhver spyr hann á fb síðunni hans.

ThoR-E, 13.5.2010 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband